Fréttir

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki að hefjast
Knattspyrna | 25. september 2018

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki að hefjast

Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2013 og 2014. Það verða tvær æfingar á viku í boði, annars vegar í Reykjaneshöll og hins vegar í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Iðkendur geta valið hvort þeir mæti á báðar æfingarnar eða eingöngu eina æfingu.


Æfing í íþróttahúsinu við Sunnubraut (æfing 1): 
Þrátt fyrir að um fótboltaæfingar sá að ræða þá er mikil áhersla á leiki, boltaæfingar, þrautabrautir og fjölbreytta hreyfingu. Æfingarnar eru eins konar "íþróttaskóli" þar sem knattspyrnan er höfð að leiðarljósi. Áhersla er lögð á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar. Æfingin er hugsuð sem skemmtileg fjölskyldustund og er foreldrum velkomið að vera nærri barni sínu ef barninu líður betur við slíkar aðstæður.

ÆfingatímiÞriðjudagar, íþróttahúsinu við Sunnubraut, kl. 17:35 - 18:30
ÆfingatímabilFyrsta æfing þriðjudaginn 2. október, síðasta æfing 11. desember.


Æfing í Reykjaneshöll (æfing 2):
Á þessum æfingum verður knattspyrnan í fyrirrúmi. Tækniæfingar með bolta, leikir og mikið spil.
Þessar æfingar eru sérstaklega ætlaðar fyrir börn sem eru með mikinn fótboltaáhuga.

Æfingatími: Föstudagar í Reykjaneshöll, kl. 17:00 - 17:50
ÆfingatímabilFyrsta æfing föstudaginn 5. október, síðasta æfing 14. desember.


Innritun:
Fyllið út skráningarblað sem þið nálgist með því að smella HÉR

Öllum skráningum verður svarað með staðfestingu í tölvupósti áður en æfingar hefjast.
Athugið að skráning í 8. flokki er EKKI í NÓRA kerfinu.


Gjald
12.000 kr. ef valið er að æfa einu sinni í viku.
19.000 kr. ef valið er að æfa tvisvar sinnum í viku.
Börnin fá glaðning að námskeiði loknu.

Systkinaafsláttur:
Barn 2 greiðir hálft gjald, frítt fyrir barn 3. 
Afsláttur á einungis við innan 8. flokks.

Knattspyrnumót:
Flokkurinn fer á knattspyrnumót í Reykjaneshöll í nóvember.

Þjálfarar hjá 8. flokki eru:
Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur
Ragnar Steinarsson, íþróttafræðingur
Ásamt aðstoðarþjálfurum

Allar nánari upplýsingar má nálgast á netfanginu:
8flokkur@keflavik.is