Fréttir

Keflavík-KA á þriðjudag kl. 18:30
Knattspyrna | 15. ágúst 2016

Keflavík-KA á þriðjudag kl. 18:30

Það verður enn einn stórleikurinn á þriðjudaginn þegar topplið KA kemur í heimsókn.  Leikurinn verður á Nettó-vellinum og við vekjum athygli á því að flautað verður til leiks kl. 18:30.  Fyrir leikinn er Keflavík í 3. sæti deildarinnar með 25 stig en KA er eins og áður sagði á toppnum með 32 stig.  Það er ljóst að okkar menn þurfa sigur í þessum leik ef við ætlum að taka alvöruþátt í toppbaráttunni í deildinni.  Það liggur því mikið við að við mætum öll og styðjum strákana.  Það er rétt að taka fram að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Dómari leiksins verður Pétur Guðmundsson, aðstoðardómarar þeir Gylfi Tryggvason og Viatcheslav Titov, varadómari er Frosti Viðar Gunnarsson og eftirlitsmaður KSÍ er Viðar Helgason.


Úr fyrri leik liðanna í sumar.
(Mynd: Jón Örvar)