Fréttir

Keflavík-Huginn á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 1. júlí 2016

Keflavík-Huginn á laugardag kl. 14:00

Mitt i öllu EM-æðinu má ekki gleyma því að það er líka verið að spila fótbolta á Íslandi og nú er komið að leik hjá okkar mönnum í Inkasso-deildinni.  Hann verður á Nettó-vellinum á laugardaginn kl. 14:00 en þá kemur lið Hugins í heimsókn.  Fyrir leikinn er Keflavík í 6. sæti deildarinnar með 10 stig en Huginn er í neðsta sætinu með þrjú stig.  Dómari leiksins verður Jóhann Ingi Jónsson og aðstoðardómarar þeir Óli Njáll Ingólfsson og Steinar Berg Sævarsson.  Eftirlitsmaður KSÍ verður svo Eyjólfur Ólafsson.  Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.

Það þarf ekki að fara mörgum orðum um fyrri leiki þessara liða en þau hafa aldrei mæst í deild eða bikar.  Liðin léku reyndar í deildarbikarnum fyrr á þessu og þar fór Huginn með sigur af hólmi.