Fréttir

Keflavík - Valur í kvöld
Knattspyrna | 4. mars 2015

Keflavík - Valur í kvöld

Þá er komið að næsta leik í Lengjubikarnum þegar Valsmenn koma í heimsókn í kvöld.  Leikurinn hefst kl. 18:00 í Reykjaneshöllinni.  Okkar menn töpuðu fyrir Fjarðarbyggð um síðustu helgi eftir að hafa unnið tvo fyrstu leiki sína.  Valsmenn hafa leikið tvo leiki í riðlinum og eru með fjögur stig.  Dómari leiksins verður Guðmundur Ársæll Guðmundsson og aðstoðardómarar þeir Viðar Helgason og Gylfi Tryggvason.

Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á SportTV.