Fréttir

Keflavík - Valur á sunnudag kl. 19:15
Knattspyrna | 25. júlí 2014

Keflavík - Valur á sunnudag kl. 19:15

Sunnudaginn 27. júlí er komið að heimaleik í Pepsi-deildinni.  Þá koma Valsmenn í heimsókn en leikurinn verður á Nettó-vellinum kl. 19:15.  Fyrir leikinn eru liðin á svipuðum slóðum í deildinni, Keflavík í 5. sæti með 17 stig og Valur kemur þar á eftir í 6. sætinu með 15 stig.  Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Gunnar Helgason og eftirlitsmaður KSÍ er Einar Örn Daníelsson.

Efsta deild
Keflavík og Valur hafa leikið 94 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1958 þegar liðin gerðu 1-1 jafntefli.  Þess má geta að Sigurður Albertsson skoraði mark Keflavíkur í þeim leik.  Keflavík hefur unnið 32 leiki, Valur hefur hins vegar sigrað 36 sinnum en 26 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 135-148, Val í hag.  Stærsti sigur Vals í leikjum liðanna var 7-1 sigur á Hlíðarenda árið 1987 og það er jafnframt mesti markaleikur sem liðin hafa háð ásamt 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999 og 5-3 sigri Keflavíkur árið 2008.  Stærstu sigrar Keflavíkur hafa verið með fjögurra marka mun, tveir 4-0 sigrar árið 1973 og 5-1 sigur árið 1964.  Fimm leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn Val; Hörður Sveinsson hefur gert fimm mörk og þeir Magnús Þórir Matthíasson, Daníel Gylfason, Jóhann Birnir Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson hafa skorað eitt mark hver.  Sá leikmaður Keflavíkur sem hefur skorað flest mörk gegn Val í efstu deild er Steinar Jóhannsson sem gerði níu mörk en næstur er Jón Ólafur Jónsson með átta.

Bikarkeppnin
Liðin hafa mæst sex sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1970 en síðast árið 1997.  Keflavík hefur unnið 4 leiki en Valur 2; markatalan þar er 13-8 fyrir Keflavík.  Jóhann B. Guðmundsson hefur skorað þrjú bikarmörk gegn Val en þau komu öll í 5-1 sigri í framlengdum leik árið 1997.  Leikurinn var í 8 liða úrslitum en Keflavík varð einmitt bikarmeistari þetta ár.

Síðast
Fyrr í sumar léku liðin í Pepsi-deildinni en sá leikur fór fram á gervigrasvellinum í Laugardal.  Keflavík  vann þann leik þar sem Magnús Þórir Matthíasson gerði eina mark leiksins.

Bæði lið
Þó nokkrir leikmenn hafa leikið fyrir Keflavík og Val í gegnum árin og hafa tveir leikmenn okkar áður leikið fyrir Val en það eru Hörður Sveinsson og Halldór Kristinn Halldórsson.  Áður höfðu m.a. Guðmundur Viðar Mete, Jakob Már Jónharðsson, Adolf Sveinsson, Bjarni Sigurðsson, Sigurjón Kristjánsson og Hafsteinn Guðmundsson leikið fyrir bæði liðin.  Þá hafa þessi lið ekki síður haft sömu þjálfara en Óli B. Jónsson, Guðbjörn Jónsson, Ian Ross, Ingi Björn Albertsson, Willum Þór Þórsson og Kristján Guðmundsson hafa allir þjálfað bæði lið.

Síðustu leikir
Úrslit í leikjum Keflavíkur og Vals á heimavelli okkar hafa orðið þessi undanfarin ár:

2013 Keflavík - Valur 2-0 Daníel Gylfason
Hörður Sveinsson
2012 Keflavík - Valur 0-4  
2011 Keflavík - Valur 0-2  
2010 Keflavík - Valur 3-1 Hörður Sveinsson 2
Andri Steinn Birgisson
2009 Keflavík - Valur 3-0 Hörður Sveinsson 2
Guðjón Árni Antoníusson
2008 Keflavík - Valur 5-3 Guðmundur Steinarsson 2
Hans Mathiesen
Símun Samuelsen
Guðjón Árni Antoníusson
2007 Keflavík - Valur 1-3 Símun Samuelsen
2006 Keflavík - Valur 1-1 Guðmundur Steinarsson
2005 Keflavík - Valur 1-5 Stefán Örn Arnarson
2001 Keflavík - Valur 1-1 Magnús Þorsteinsson


Leikurinn
Þrisvar hafa verið skoruð átta mörk í leikjum Keflavíkur og Vals í efstu deild.  Þar á meðal er 4-4 jafntefli í Keflavík árið 1999.  Arnór Guðjohnsen gerði tvö marka Vals í leiknum og meðal markaskorara Keflavíkur var Karl Finnbogason sem gerði þar fyrsta og eina mark sitt í efstu deild.  Meðal leikmanna Vals í leiknum voru sjónvarpsmennirnir Hjörvar Hafliðason og Hörður Magnússon og í liði Keflavíkur voru tveir fyrrverandi þjálfarar okkar, þeir Gunnar Oddssonn og Zoran Ljubicic.
Smellið á fréttina fyrir neðan til að sjá stærri útgáfu.