Fréttir

Keflavík - Þór á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 20. febrúar 2015

Keflavík - Þór á laugardag kl. 14:00

Á laugardaginn er komið að næsta leik í Lengjubikarnum en þá mæta okkar menn Þór.  Það er rétt að vekja athygli á því að leikurinn fer fram í Akraneshöllinni og hefst kl. 14:00.  Það verður tvíhöfði á Skaganum en kl. 11:15 leika ÍA og Stjarnan í sömu keppni.  Keflavík vann sigur á Grindavík í fyrst leik sínum í riðlinum og Þór sigraði lið Fjarðabyggðar.  Dómari leiksins verður Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og aðstoðardómarar hans þeir Steinar Berg Sævarsson og Guðmundur Valgeirsson.