Fréttir

Keflavík - Leiknir F. á laugardag kl. 16:00
Knattspyrna | 9. september 2016

Keflavík - Leiknir F. á laugardag kl. 16:00

Nú fer keppni í Inkasso-deildinni að styttast í annan endann en á laugardaginn tökum við á móti Leiknismönnum frá Fáskrúðsfirði.  Liðin spila á Nettó-vellinum og hefja leik kl. 16:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 3. sæti deildarinnar með 30 stig og hefur að litlu að keppa.  Leiknismenn eru hins vegar í neðsta sætinu og berjast harðri baráttu fyrir sæti sínu í deildinni.  Dómari þessa leiks verður Vilhelm Adolfsson, aðstoðardómarar hans þeir Sigurður Ingi Magnússon og Bjarki Óskarsson en eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Sigurðsson.