Fréttir

Keflavík - Fram á sunnudag kl. 16:00
Knattspyrna | 11. júní 2016

Keflavík - Fram á sunnudag kl. 16:00

Sunnudaginn 12. júní koma Framarar í heimsókn og mæta okkar mönnum í 6. umferð Inkasso-deildarinnar.  Leikurinn hefst á Nettó-vellinum kl. 16:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 5. sæti deildarinnar með 9 stig en Fram kemur rétt á eftir með átta.  Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar verða þeir Andri Vigfússon og Magnús Garðarsson en eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Sigurðsson.

Þetta verður enn einn leikurinn þar sem Þorvaldur þjálfari mætir fyrrum lærisveinum sínum en það hefur hann þá gert í fjórum af fyrstu sex leikjum okkar í deildinni þetta sumarið.  Áður höfum við gert jafntefli við HK, Fjarðabyggð og KA.  Þorvaldur hefur reyndar einnig þjálfað ÍA sem við mætum þó ekki í sumar og líklega ekki heldur U-19 ára landsliði karla.

Við hvetjum auðvitað alla stuðningsmenn til að mæta og styðja strákana enda ljóst að það verður hörkuleikur á Nettó-vellinum á sunnudaginn.