Fréttir

Ísak semur til þriggja ára
Knattspyrna | 5. janúar 2018

Ísak semur til þriggja ára

Ísak Óli Ólafsson, efnilegasti leikmaður Keflavíkur 2017, framlengdi á dögunum samning sinn við Keflavík til þriggja ára. Það þarf ekkert hafa mörg orð um það hve mikilvægur leikmaður Ísak er en hann var einn af máttarstólpum liðsins síðastliðið sumar. Ísak spilaði alla leikina í Inkasso deildinni nema 1 og skoraði eitt mark. Að auki spilaði hann einn leik í Borgunarbikarnum. Ísak sem verður 18 ára á árinu hefur leikið 10 landsleiki fyrir U17 ára lið Íslands og 1 leik með U19 ára liði. Við fögnum þessum tíðindum og hlökkum til að sjá Ísak þreyta frumraun sína í efstu deild í sumar.

 

Hér er Ísak með Jónasi Guðni framkvæmdastjór