Fréttir

ÍBV - Keflavík á sunnudag kl. 17:00
Knattspyrna | 29. ágúst 2015

ÍBV - Keflavík á sunnudag kl. 17:00

Þá er komið að næsta leik í Pepsi-deildinni en það er útileikur gegn ÍBV í 18. umferð deildarinnar.  Leikurinn verður á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum sunnudaginn 30. ágúst kl. 17:00.  Fyrir leikinn er okkar lið i neðsta sæti deildarinnar með sjö stig en ÍBV er í 10. sætinu með 15 stig.

Dómararnir
Dómari leiksins verður Erlendur Eiríksson, aðstoðardómarar þeir Halldór Breiðfjörð Jóhannsson og Adolf Þorberg Andersen og eftirlitsmaður KSÍ er Einar Sigurðsson.

Stuðullinn

  1 X 2
Lengjan 1,60 3,10 3,70

Getraunanúmer Keflavíkur er 230.

Efsta deild
Keflavík og ÍBV hafa leikið 70 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1968.  Það hefur verið mikið jafnræði með liðunum en Keflavík hefur unnið 30 leiki en Eyjamenn 28 og 13 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 108-112, ÍBV í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur gegn ÍBV kom árið 2009 en honum lauk með 6-1 sigri á heimavelli.  Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000.  Mestu markaleikur þessara liða eru tveir heimasigrar hjá Keflavík, 5-3 sigur árið 1971 og 6-2 leikur árið 2006.  

Liðin hafa leikið 34 sinnum í Eyjum í efstu deild.  Þar hefur Keflavík unnið 11 leiki, fimm hefur lokið með jafntefli en ÍBV hefur unnið 18 heimaleiki í efstu deildinni.  Markatalan í útileikjum gegn ÍBV er 41-66 fyrir ÍBV.

Níu leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur skorað sjö mörk, Jóhann Birnir Guðmundsson fjögur, Einar Orri Einarsson, Magnús Þorsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic og Magnús Þórir Matthíasson tvö og þeir Leonard Sigurðsson, Frans Elvarsson og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hver.

Alls hafa 44 leikmenn skorað fyrir Keflavík gegn ÍBV í efstu deild.  Það er Steinar Jóhansson sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn ÍBV í efstu deild en þau voru tólf.  Næstir eru  Guðmundur Steinarsson og Óli Þór Magnússon með sjö mörk hvor.

B-deild
Keflavík og ÍBV léku tvö tímabil saman í næstefstu deild árín 1956 og 1957.  Keflavík hóf einmitt að leika á Íslandsmóti árið 1956 og Eyjamenn léku fyrst undir merkjum ÍBV árið áður.  Keflavík vann báða leiki liðanna, fyrri leikinn 2-0 og seinni leikinn 7-1.

Bikarkeppnin
Liðin hafa mæst 11 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999.  Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 7.  Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997.  Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn.

Síðast
Liðin mættust Pepsi-deildinni fyrr í sumar og þá á Nettó-vellinum.  Þeim leik lauk með 3-1 sigri Keflavíkur og það er eini sigur liðsins í deildinni í sumar.  Hörður Sveinsson, Einar Orri Einarsson og Leonard Sigurðsson gerðu mörk Keflavíkur en Johnathan Glenn skoraði fyrir gestina.

Bæði lið
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma.  Varnarjaxlarnir Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum og það gerði einnig Zoran nokkur Ljubicic.  Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.

Síðustu leikir
Úrslit í leikjum ÍBV og Keflavíkur í Eyjum hafa orðið þessi undanfarin ár:

Dags. Keppni Áh. Úrslit Mörk Keflavíkur
28.09.2014 A-deild 523 0-2 Elías Már Ómarsson 7.    
Frans Elvarsson 90.
22.08.2013 A-deild 318 1-1 Hörður Sveinsson 64.
20.08.2012 A-deild 679 0-1 Guðmundur Steinarsson 11.
  Frans Elvarssson fékk rautt spjald
21.08.2011 A-deild 794 2-1 Magnús Þórir Matthíasson 51.
08.07.2010 A-deild 846 2-1 Magnús Þórir Matthíasson 45.
  Guðjón Árni Antoníusson fékk rautt spjald
12.07.2009 A-deild 620 2-2 Haukur Ingi Guðnason 10.    
Haukur Ingi Guðnason 17.
14.05.2006 A-deild 733 2-1 Símun Samuelsen 20.
22.05.2005 A-deild 460 2-3 Hörður Sveinsson 6.    
Guðmundur Steinarsson 34.    
Ingvi Rafn Guðmundsson 49.
15.06.2004 A-deild 380 4-0  
  Ólafur Ívar Jónsson skoraði sjálfsmark
25.05.2002 A-deild 625 1-2 Þórarinn Kristjánsson 41.    
Guðmundur Steinarsson 77.