Fréttir

ÍBV - Keflavík á sunnudag kl. 14:00
Knattspyrna | 27. september 2014

ÍBV - Keflavík á sunnudag kl. 14:00

Sunnudaginn 28. september er komið að leik í 21. umferð Pepsi-deildarinnar þegar ÍBV og Keflavík mætast á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum kl. 14:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 10. sæti deildarinnar með 19 stig en Eyjamenn eru í 8. sæti með 22 stig.  Þetta er enn einn mikilvægur leikur hjá okkar mönnum en að honum loknum er aðeins einn leikur eftir í deildinni þetta árið.  Leikir þessar liða eru alltaf fjörugir og þess má geta að síðasti markalausi leikur þeirra var árið 1994.  Dómari leiksins verður Þorvaldur Árnason, aðstoðardómarar þeir Gunnar Sverrir Gunnarsson og Adolf Þorberg Andersen og eftirlitsmaður KSÍ er Þórarinn Dúi Gunnarsson.

Efsta deild
Keflavík og ÍBV hafa leikið 68 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1968.  Það hefur verið mikið jafnræði með liðunum en Keflavík hefur unnið 27 sinnum en ÍBV 28 leiki; 13 leikjum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er 103-111, ÍBV í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur gegn ÍBV kom árið 2009 en honum lauk með 6-1 sigri á heimavelli.  Eyjamenn sigruðu 6-1 árið 1972 og 5-0 árið 2000.  Mestu markaleikur þessara liða eru tveir heimasigrar hjá Keflavík, 5-3 sigur árið 1971 og 6-2 leikur árið 2006.  Sjö leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍBV í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur skorað sex mörk, Jóhann Birnir Guðmundsson fjögur, Magnús Þorsteinsson, Bojan Stefán Ljubicic og Magnús Þórir Matthíasson tvö og þeir Einar Orri Einarsson og Haraldur Freyr Guðmundsson hafa gert eitt mark hvor.  Það er hins vegar Steinar Jóhansson sem hefur gert langflest mörk fyrir Keflavík gegn ÍBV í efstu deild eða 12.

Bikarkeppnin
Liðin hafa mæst 9 sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1968 og síðast árið 1999.  Keflavík hefur unnið 3 bikarleiki en Eyjamenn 5.  Einum leik lauk með jafntefli og það er auðvitað hinn frægi bikarúrslitaleikur á Laugardalsvelli árið 1997.  Markatalan í bikarnum er 14-16 fyrir Eyjamenn. 

Síðast
Liðin léku fyrr í sumar í Pepsi-deildinni og þá á heimavelli okkar.  Eyjamenn unnu þann leik 2-1 þar sem Magnús Þorsteinsson skoraði fyrir Keflavík en Víðir Þorvarðarson og Atli Fannar Jónsson gerðu mörk ÍBV.

Bæði lið
Nokkrir leikmenn hafa leikið með bæði Keflavík og ÍBV, auk þess sem Kjartan nokkur Másson þjálfaði bæði liðin á sínum tíma.  Varnarjaxlarnir Bjarni Hólm Aðalsteinsson, Valþór Sigþórsson og Jakob Jónharðsson léku með báðum liðum og það gerði einnig Zoran nokkur Ljubicic.  Rútur Snorrason lék nokkra leiki með Keflavík áður en hann varð að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla en Rútur hafði áður leikið um árabil með ÍBV.

Síðustu leikir
Úrslit í leikjum ÍBV og Keflavíkur í Eyjum hafa orðið þessi undanfarin ár:

2013 ÍBV - Keflavík 1-1 Hörður Sveinsson
2012 ÍBV - Keflavík 0-1 Guðmundur Steinarsson
2011 ÍBV - Keflavík 2-1 Magnús Þórir Matthíasson
2010 ÍBV - Keflavík 2-1 Magnús Þórir Matthíasson
2009 ÍBV - Keflavík 2-2 Haukur Ingi Guðnason 2
2006 ÍBV - Keflavík 2-1 Símun Samuelsen
2005 ÍBV - Keflavík 2-3 Hörður Sveinsson
Guðmundur Steinarsson
Ingvi Rafn Guðmundsson
2004 ÍBV - Keflavík 4-0  
2002 ÍBV - Keflavík 1-2 Þórarinn Kristjánsson
Guðmundur Steinarsson
2001 ÍBV - Keflavík 1-0 Kristján Brooks