Fréttir

ÍA - Keflavík á mánudag kl. 19:15
Knattspyrna | 21. júní 2015

ÍA - Keflavík á mánudag kl. 19:15

Næst á dagskrá er stórleikur í Pepsi-deildinni en þá heimsækjum við ÍA á Skipaskaga.  Bæði lið eru að berjast í neðri hluta deildarinnar og leikurinn er svo sannarlega mikilvægur.  Leikurinn verður á Norðuráls-vellinum á Akranesí mánudaginn 22. júní kl. 19:15.  Fyrir leikinn er Keflavík í 11. sæti deildarinnar með fjögur stig en ÍA er í 10. sætinu með sex stig.

Dómararnir
Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, aðstoðardómarar þeir Leiknir Ágústsson og Smári Stefánsson og eftirlitsmaður KSÍ er Björn Guðbjörnsson.

Stuðullinn

  1 X 2
Lengjan 1,95 2,85 2,80

Getraunanúmer Keflavíkur er 230.

Efsta deild
Keflavík og ÍA hafa mæst 90 sinnum í efstu deild og hafa Skagamenn talsverða yfirburði í viðureignum liðanna.  Liðin mættust fyrst árið 1958 þegar við lékum fyrst í efstu deild.  Akranes vann þann leik 5-1 en Högni Gunnlaugsson skoraði mark Keflavíkur.  Alls hefur ÍA sigrað í 54 leikjum, 12 sinnum hefur orðið jafntefli en Keflavík hefur unnið 24 leiki.  Markatalan er 115-187, Skagamönnum í vil.  Stærstu sigrar Keflavíkur í leikjum liðanna eru 4-1 sigrar 1973 og 2008 en stærsta tapið var 0-9 tap árið 1959 en það er stærsta tap Keflavíkur í efstu deild. 

Liðin hafa leikið 44 sinnum á Akranesi í efstu deild.  Þar hefur Keflavík unnið 12 leiki, þremur hefur lokið með jafntefli en ÍA hefur unnið 29 leikjanna.  Markatalan í útileikjum gegn ÍA er 55-106 fyrir ÍA.

Fjórir leikmenn í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn ÍA í efstu deild; Hörður Sveinsson hefur skorað fjögur mörk og Jóhann Birnir Guðmundsson, Guðjón Árni Antoníusson og Magnús Þorsteinsson hafa skorað tvö mörk hver.

Alls hafa 48 leikmenn skorað fyrir Keflavík gegn ÍA í efstu deild.  Það er Steinar Jóhansson sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn ÍA í efstu deild en þau voru níu.  Næstir eru Guðmundur Steinarsson, Óli Þór Magnússon og Þórarinn Kristjánsson allir með fimm mörk.  Þess má geta að Hallgrímur Jónasson skoraði á sínum tíma fjögur mörk fyrir Keflavík í 48 leikjum í efstu deild en mörkin fjögur komu öll á móti liði ÍA.

B-deild
Liðin mættust tvisvar í næstefstu deild en það var árið 1991.  Skagamenn unnu báða leikina og markatalan var 1-6.

Bikarkeppnin
Keflavík og ÍA hafa leikið 15 leiki í bikarkeppninni, fyrst árið 1960 og síðast árið 2006.  Keflavík hefur unnið 5 leikjanna en ÍA 9 en einum lauk með jafntefli.  Markatalan er 17-27 fyrir ÍA.

Síðast
Liðin léku síðast bæði í Pepsi-deildinni árið 2013 og þá vann Keflavík báða leiki liðanna.  Fyrri leikurinn á Akranesi fór 3-2 þar sem Hörður Sveinsson, Arnór Ingvi Traustason og Magnús Þór Magnússon skoruðu fyrir Keflavík en Ármann Smári Björnsson og Jóhannes Karl Guðjónsson fyrir heimamenn.  Keflavík vann svo á Nettó-vellinum í miklum markaleik þar sem lokatölur urðu 5-4.  Hörður Sveinsson gerði þrennu í leiknum og Arnór Ingvi Traustason og Magnús Þorsteinsson gerðu sitt hvort markið.  Garðar Bergmann Gunnlaugsson, Arnar Már Guðjónsson, Jóhannes Karl Guðjónsson og Jorge Corella Garcia skoruðu mörk ÍA.

Bæði lið
Í gegnum árin hafa nokkir leikmenn leikið með báðum þessum liðum og má þar nefna Bjarna Sigurðsson, Kristján Jóhannsson og Bjarka Freyr Guðmundsson.

Síðustu leikir
Úrslit í leikjum ÍA og Keflavíkur á Akranesi hafa orðið þessi undanfarin ár:

Dags. Keppni Áh. Úrslit Mörk Keflavíkur
24.06.2013 A-deild 1123 2-3 Hörður Sveinsson 13.    
Arnór Ingvi Traustason 16.    
Magnús Þór Magnússon 84.
20.05.2012 A-deild 1796 2-3 Guðmundur Steinarsson 37. (v)     
Arnór Ingvi Traustason 73.
11.08.2008 A-deild 963 1-4 Símun Samuelsen 9.    
Guðmundur Steinarsson 19.    
Patrik Redo 76.    
Patrik Redo 82.
04.07.2007 A-deild 1832 2-1 Hallgrímur Jónasson 83.
  Einar Orri Einarsson fékk rautt spjald
24.08.2006 A-deild 1093 1-0  
23.07.2006 Bikarkeppni 1399 1-4 Þórarinn Kristjánsson 18.    
Guðmundur Steinarsson 48. (v)    
Guðmundur Steinarsson 75.    
Símun Samuelsen 81.
  Leikur í 8 liða úrslitum, Keflavík varð bikarmeistari þetta ár
15.06.2006 A-deild 931 1-2 Guðjón Árni Antoníusson 54.    
Guðmundur Steinarsson 77.
31.08.2004 A-deild 513 2-1 Þórarinn Kristjánsson 19. (v)
01.07.2003 Bikarkeppni 948 1-0  
  Leikur í 16 liða úrslitum.
19.06.2002 A-deild 1058 5-2 Adolf Sveinsson 6.    
Hörður Sveinsson 80.