Fréttir

ÍA - Keflavík á laugardag kl. 11:15
Knattspyrna | 20. mars 2015

ÍA - Keflavík á laugardag kl. 11:15

Á laugardaginn er komið að útileik gegn ÍA í Lengjubikarnum.  Það er eins gott að vakna ekki mjög seint ef fólk ætlar að skreppa upp á Skaga en þar verður flautað til leiks kl. 11:15 í Akraneshöllinni.  Okkar menn hafa átt misjöfnu gengi að fagna í keppninni og eru með sjö stig eftir fimm leiki.  Lið ÍA er hins vegar á toppi riðilsins með 12 stig úr fimm leikjum.  Dómari leiksins verður Gunnar Helgason og aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Helgi Mikael Jónasson.