Fréttir

Hilmar Þór til Keflavíkur
Knattspyrna | 25. júlí 2014

Hilmar Þór til Keflavíkur

Hilmar Þór Hilmarsson er kominn til Keflavíkur sem lánsmaður frá Stjörnunni.  Hann er fæddur árið 1990 og hefur yfirleitt leikið sem vinstri bakvörður enda örvfættur.  Hilmar á að baki nokkra leiki með Stjörnunni í efstu deild en hefur einnig leikið með Fjölni og Víkingi Ól. á 1. deildinni.

Við bjóðum Hilmar Þór velkominn í hópinn.