Fréttir

Haustmót 5. og 6. flokks kvenna á laugardaginn
Knattspyrna | 31. október 2014

Haustmót 5. og 6. flokks kvenna á laugardaginn

Eins og undanfarin ár stendur Keflavík fyrir mótum fyrir yngri flokka karla og kvenna í haust.  Mótin fara fram í Reykjaneshöllinni og er lögð mikil áhersla á að tímasetningar standist og mótin gangi hratt og vel fyrir sig.  Laugardaginn 1. nóvember verður mót hjá 6. flokki kvenna fyrir hádegi og hjá 5. flokki kvenna eftir hádegi.

Við hvetjum foreldra og aðra til að mæta og fylgjast með en hér er leikskrá mótsins hjá 6. flokki og hér má sjá leikskrána fyrir 5. flokk (PDF-skjöl).