Fréttir

Haustmót 6. flokks á laugardag
Knattspyrna | 23. október 2014

Haustmót 6. flokks á laugardag

Eins og undanfarin ár stendur Keflavík fyrir mótum fyrir yngri flokka karla og kvenna í haust.  Mótin fara fram í Reykjaneshöllinni og er lögð mikil áhersla á að tímasetningar standist og mótin gangi hratt og vel fyrir sig.  Fyrsta mótið þetta haust verður laugardaginn 25. október en þá leikur 6. flokkur karla.

Við hvetjum foreldra og aðra til að mæta og fylgjast með en hér er leikskrá mótsins (PDF-skjal).