Fréttir

Haraldur Freyr ráðinn aðstoðarþjálfari 2. flokks karla
Knattspyrna | 3. júlí 2017

Haraldur Freyr ráðinn aðstoðarþjálfari 2. flokks karla

Keflavík hefur samið við Harald Frey Guðmundsson um að gerast aðstoðarþjálfari 2. flokks karla út tímabilið en hann mun taka við af Guðjóni Árna sem sölsaði um og tók við þjálfun Víðis í Garði.  Haraldur er öllum Keflvíkingum kunnugur en hann spilaði yfir 200 leiki með Keflavík og var fyrirliði liðsins til margra ára.

Keflavík fagnar því að fá þennan sterka aðila til liðs við sig aftur og býður Harald velkomin.

 


Jón Ben formaður og Halli Gumm handsala samninginn.