Fréttir

Gunnar M.Jónsson framlengir við Keflavík
Knattspyrna | 23. október 2019

Gunnar M.Jónsson framlengir við Keflavík


Knattspyrnudeild Keflavíkur hefur framlengt samning sinn við Gunnar M. Jónsson þjálfara kvennaliðsins, samingurinn er til tveggja ára. Gunnar er að hefja sitt fimmta ár með liðinu og undir hans stjórn hefur liðið, sem er að mestu byggt upp af ungum heimstúlkum, vaxið og dafnað og spiluðu í fyrsta sinn í efstu deild sl. sumar eftir nokkra fjarveru. Því miður vantaði hársbreidd til að halda liðinu í Pepsí en þær settu svo sannarlega mark sitt á deildina svo eftir var tekið.

Það er mikill fengur að halda slíkum ástríðumanni fyrir þjálfun og fótbolta hjá félaginu og er liður í því verkefni að koma stelpunum strax upp í deild þeirra bestu, þar sem þær eiga sannarlega heima.

Áfram Keflavík!