Fréttir

Grannaslagur á miðvikudag
Knattspyrna | 19. júlí 2016

Grannaslagur á miðvikudag

Keflavíkurstúlkur sækja Grindavík heim í 9. umferð Íslandsmótsins á miðvikudaginn. Liðin mættust í eftirminnilegum leik í upphafi móts, þar sem Keflavíkurstúlkur sigruðu 1 - 0  með sigurmarki frá Anitu Lind Daníelsdóttur í uppbótartíma (markið af vf.is). 

Grindavíkurliðið er á toppi riðilsins og hafa ekki tapað leik eftir tapið gegn Keflavík. Það má búast við hörkuleik í veðurblíðunni í Grindavík og er fólk hvatt til að fjölmenna á völlinn. Leikurinn hefst kl. 20:00.