Fréttir

Fyrirlestur um veðmál og hagræðingu úrslita
Knattspyrna | 13. apríl 2017

Fyrirlestur um veðmál og hagræðingu úrslita

KSÍ hélt fyrirlestur fyrir iðkendur í 2. og 3. flokk karla og kvenna um veðmál og hagræðingu úrslita í knattspyrnuleikjum en það er orðið víðtækt vandamál út um allan heim.  Þorvaldur Ingimundarson heilindafulltrúi hjá KSÍ fór vel yfir þessi mál og benti iðkendum á að þetta byrjaði oftast í mjög litlum skömmtum en færi svo stækkandi og með meiri freistandi tilboðum en viðurlögin við því að hagræða úrslitum væri lífstíðarbann frá íþróttinni.  Þetta var virkilega áhugverður fyrirlestur og greinilegt að það eru margir sem vilja græða á vinsælustu íþróttgrein í heiminum.

Knattspyrnudeilidn hvetur alla sína iðkendur að láta vita af því ef það er einhver sem reynir að hafa samband með það í huga að hafa áhrif á úrslit leikja.


Það var vel mætt á fyrirlesturinn.

Þorvaldur Ingimundarson heilindafulltrúi KSÍ.