Fréttir

Forystumaður fallinn frá
Knattspyrna | 2. desember 2019

Forystumaður fallinn frá

 

Forystumaður fallinn frá

Árangur Keflavíkur í knattspyrnu má m.a. þakka sterkum bakhjörlum og forystumönnum sem hafa lagt sitt af mörkum í 80 ára sögu knattspyrnunnar. Einn af þessum forystumönnum, Árni Þ. Þorgrímsson, fyrrverandi formaður knattspyrnuráðs ÍBK, er nú látinn 88 ára að aldri. Árni var fæddur í Keflavík 6. ágúst 1931, en hann hóf ungur þátttöku í íþróttum þá einkum í knattspyrnu með Ungmennafélagi Keflavíkur. Hann sat í stjórnum og ráðum UMFK og ÍBK um margra ára skeið, lengst af sem formaður og gjaldkeri Knattspyrnuráðs ÍBK, eða frá 1968 til ársins 1977. Í stjórnartíð hans varð ÍBK Íslandsmeistari 1969, 1971 og 1973, auk þess að ná bikarmeistaratitli árið 1975.

Árni sat einnig í stjórn KSÍ árin 1974 til 1984 og var varaformaður stjórnar um tíma. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir sambandið, var meðal annars ritari, formaður mótanefndar, formaður landsliðsnefndar, formaður kvennanefndar og formaður dómaranefndar.

Árni var sæmdur gullmerki knattspyrnudeildar Keflavíkur árið 2010, gullmerki ÍSÍ á fimmtugsafmæli sínu árið 1981 og gullmerki KSÍ árið 1984.

Knattspyrnudeild Keflavíkur kveður fallinn félaga og þakkar um leið vel unnin störf í þágu knattspyrnunnar. Við sendum sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu og ástvina.

Sigurður Garðarsson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur