Fréttir

Fjarðabyggð-Keflavík á laugardag kl. 14:00
Knattspyrna | 20. maí 2016

Fjarðabyggð-Keflavík á laugardag kl. 14:00

Næsti leikur í Inkasso-deildinni er útileikur gegn Fjarðabyggð á laugardaginn.  Leikurinn verður í Fjarðabyggðarhöllinni á Reyðarfirði og hefst kl. 14:00.  Keflavík er með fjögur stig eftir fyrstu tvær umferðirnar en Fjarðabyggð er með þrjú.  Það er Sigurður Óli Þórleifsson sem sér um dómgæslu í leiknum og honum til aðstoðar verða Viatcheslav Titov og Tómas Orri Hreinsson.  Eftirlitsmaður KSÍ er Viðar Helgason.

Þetta verður fyrsti leikur þessara félaga í deild eða bikar en Fjarðabyggð hóf leik árið 2001 þegar KVA og Þróttur Neskaupstað sameinuðust.  Keflavík og Fjarðabyggð léku reyndar í deildarbikarnum árin 2008 og 2015 og þar sigruðu Austfirðingar í báðum leikjunum.  Þess má geta að Keflavík og Þróttur Neskaupstað léku saman í B-deildinni árið 1981 og þá vann Keflavík báða leiki liðanna 1-0.  Magnús Garðarsson gerði eina mark leiksins á Keflavíkurvelli en Skúli Rósantsson skoraði sigurmarkið á Neskaupstað.