Fréttir

FH - Keflavík á miðvikudag kl. 18:00
Knattspyrna | 19. ágúst 2014

FH - Keflavík á miðvikudag kl. 18:00

Eftir skemmtilegt bikarævintýri er aftur komið að Pepsi-deildinni og nú er það útileikur gegn FH.  Hann verður miðvikudaginn 20. ágúst á Kaplakrikavelli og hefst kl. 18:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 6.-7. sæti deildarinnar með 18 stig en FH-ingar eru í 2. sæti með 32 stig.  Dómari leiksins verður Þóroddur Hjaltalín, aðstoðardómarar þeir Birkir Sigurðarson og Haukur Erlingsson og Þórður Ingi Guðjónsson er svo eftirlitsmaður KSÍ.

Efsta deild
Keflavík og FH hafa leikið 49 leiki í efstu deild, þann fyrsta árið 1975.  Keflavík hefur unnið 10 leiki, FH hefur unnið 23 leiki en jafntefli hefur orðið í 16 leikjum.  Markatalan er 62-84, FH-ingum í vil.  Stærsti sigur Keflavíkur í leikjum liðanna er 6-1 sigur árið 1976 en stærstu töpin gegn FH komu árið 1993 þegar FH vann 5-1 í Hafnarfirði og í fyrra unnu FH-ingar 4-0 sigur á heimavelli okkar.  Mesti markaleikur liðanna var á Kaplakrikavelli árið 2010 þegar FH vann 5-3.  Þrír leikmenn sem nú eru í leikmannahópi Keflavíkur hafa skorað gegn FH í efstu deild; Magnús Þorsteinsson hefur skorað fimm mörk og Elías Már Ómarsson og Jóhann B. Guðmundsson eitt mark hvor.  Það er einmitt Magnús sem hefur gert flest mörk fyrir Keflavík gegn FH í efstu deild.

Bikarkeppnin
Liðin hafa einnig mæst tíu sinnum í bikarkeppni KSÍ, fyrst árið 1972 en síðast í fyrrasumar. Bæði lið hafa unnið fimm leiki en einum lauk með jafntefli.  Markatalan er 17-13 fyrir Keflavík.  Haraldur Freyr Guðmundsson hefur gert tvö bikarmörk gegn FH-ingum.

Síðast
Liðin léku fyrr í sumar í Pepsi-deildinni og þá á heimavelli okkar.  Þeim leik lauk með 1-1 jafntefli þar sem Elías Már Ómarsson kom okkar liði yfir en Atli Viðar Björnsson jafnaði fyrir FH.

Bæði lið
Nokkur tengsl hafa verið milli Keflavíkur og FH í gegnum árin og nú leika tveir fyrrverandi leikmenn okkar með FH-ingum, þeir Hólmar Örn Rúnarsson og Guðjón Árni Antoníusson.  Þess má geta að Albert Guðmundsson og sonur hans Ingi Björn þjálfuðu bæði liðin á sínum tíma.  Meðal annarra leikmanna sem hafa leikið fyrir bæði liðin eru Gunnleifur Gunnleifsson, Alen Sutej, Þorsteinn Bjarnason, Jón Þorgrímur Stefánsson, Kristján Hilmarsson, Valþór Sigþórsson og bræðurnir Daníel og Grétar Einarssynir.

Síðustu leikir
Úrslit í leikjum FH og Keflavíkur í Hafnarfirði hafa orðið þessi undanfarin ár:

2013 FH - Keflavík 2-1 Marjan Jugovic
2012 FH - Keflavík 3-0  
2011 FH - Keflavík 1-0  
2010 FH - Keflavík 5-3 Haukur Ingi Guðnason
Bjarni Hólm Aðalsteinsson
Brynjar Örn Guðmundsson
2009 FH - Keflavík 2-2 Guðjón Árni Antoníusson
Magnús Þorsteinsson
2008 FH - Keflavík 3-2 Magnús Þorsteinsson 2
2007 FH - Keflavík 3-2 Baldur Sigurðsson
Marco Kotilainen
2006 FH - Keflavík 2-1 Sjálfsmark
2005 FH - Keflavík 2-0  
2004 FH - Keflavík 1-1 Sjálfsmark

Leikurinn
Í þetta sinn rifjum við upp leik Keflavíkur og FH frá árinu 2008.  Þá vann Keflavík heimaleikinn þar sem Magnús Þorsteinsson gerði eina mark leiksins.  Liðin háðu síðan einvígi um Íslandsmeistaratitilinn og þar hafði FH betur.  Hér má sjá frásögn Fréttablaðsins frá leiknum.
Smellið á fréttina fyrir neðan til að sjá stærri útgáfu.