Fréttir

Ert þú manneskjan sem við leitum að?
Knattspyrna | 22. nóvember 2018

Ert þú manneskjan sem við leitum að?

Knattspyrnudeild Keflavíkur óskar eftir aðilum til að sjá um getraunastarf fyrir félagið og halda utan um hópleik á laugardagsmorgnum milli kl 10 og 12 á efri hæð Blue hallarinnar við Sunnubraut.

Getraunastarf er mikilvæg fjáröflun auk þess sem í því felast miklir möguleikar hvað varðar eflingu á félagsstarfi. Margir tala um hve gaman þeir höfðu af öflugu getraunastarfi hér á árum áður þegar það var fastur liður að fara að tippa í K húsinu, sýna sig og sjá aðra, fá sér kaffisopa og brauðmeti, ræða málin og freista þess að græða milljónir með því einu að hafa vit á fótbolta. Knattspyrnudeildin freistar þess nú að endurvekja þessa stemningu.

Hér er um að ræða tækifæri á að skila mjög mikilvægu og vel metnu framlagi til félagsins.

Ýmis hlunnindi í boði fyrir vel unnið starf, bæði frá Keflavík og KSÍ, sem gætu komið á óvart.

Áhugasamir hafi samband við Jónas Guðna, framkvæmdastjóra knattspyrnudeildar í síma 848 3982 eða með facebook skilaboðum.

Athugið vel að ekki er útilokað að skipuleggja teymi sem tæki starfsemina að sér, svo einstaklingur þurfi ekki að binda sig alla laugardagsmorgna.