Fréttir

Bikarúrslit 2. flokks á þriðjudag
Knattspyrna | 26. september 2016

Bikarúrslit 2. flokks á þriðjudag

Lið Keflavíkur/Njarðvíkur leikur til úrslita í bikarkeppni 2. flokks þriðjudaginn 27. september gegn Fjölni.  Leikurinn verður á Nettó-vellinum í Keflavík og hefst þar kl. 16:00.  Dómari leiksins verður Helgi Mikael Jónasson og aðstoðardómarar þeir Gylfi Tryggvason og Þórður Arnar Árnason.

Við hvetjum stuðningsmenn Keflavíkur og Njarðvíkur að sjálfsögðu til að mæta og styðja okkar stráka.