Fréttir

Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur gefur gamla keppnisbúninga til ABC
Knattspyrna | 8. febrúar 2018

Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur gefur gamla keppnisbúninga til ABC

 

Barna og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur gefur gamla keppnisbúninga til ABC hjálparstarfs í Búrkína Fasó í Afríku.  Ólafía K. Norðfjörð er að fara í 12 daga hjálparstarf til Afríku og leitaði til okkar með þessa hugmynd sem var vel tekið.

 Á myndinni er Ólafía með fráfarandi formanni  BUR , Smára Helgasyni og viðtakandi formanni Svavari M.Kjartanssyni.  Keflavík óskar henni góðrar ferðar og þakkar fyrir góða hugmynd að endurnýta búninga og gleðja afrísk börn í leiðinni.

 

Barna- og unglingaráð Knattspyrnudeildar Keflavíkur