Fréttir

Axel Kári í Keflavík
Knattspyrna | 12. nóvember 2015

Axel Kári í Keflavík

Axel Kári Vignisson er genginn til liðs við Keflavík en hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.  Axel er 25 ára gamall varnarmaður sem lék síðast með HK en hann hefur einnig leikið meðð ÍR og Víkingi.  Hann á að baki 158 leiki fyrir þessi félög í deild og bikar og hefur skorað í þeim 11 mörk.

Við bjóðum Axel Kára velkominn í hópinn.