Fréttir

Aukaaðalfundur Knattspyrnudeildar á fimmtudag
Knattspyrna | 6. október 2015

Aukaaðalfundur Knattspyrnudeildar á fimmtudag

Aukaaðalfundur knattspyrnudeildar Keflavíkur verður haldinn fimmtudaginn 8. október 2015 kl. 20:00 í sal 2 í félagsheimili Keflavíkur að Sunnubraut 34.

Aðalfundarstörf samkvæmt 28. gr. laga félasins.

28.gr.

Heimilt er stjórn deildar að boða til aukaaðalfundar að fengnu leyfi aðalstjórnar. Til aukaaðalfundar skal boða á sama hátt og til aðalfundar (sbr. 21. gr.).  Dagskrá aukaaðalfundar skal vera sem hér segir:

Fundarsetning.

a) Kosinn fundarstjóri.

b) Kosinn fundarritari.

c) Stjórnarkjör.

d) Milliuppgjör kynnt.

e) Fundarslit.

Athygli er vakin á því að þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram til formanns þurfa að send framboð sitt fimm dögum fyrir áður auglýstan aukaaðalfund með tölvupósti á netfangið keflavik@keflavik.is . sjá gr. 20 í lögum félagsins


Hér má sjá lög félagsins í heild sinni

Fyrir hönd Keflavíkur
Einar Haraldsson formaður