Fréttir

Auglýst eftir þjálfara
Knattspyrna | 23. september 2014

Auglýst eftir þjálfara

Knattspyrnudeild Keflavíkur auglýsir eftir þjálfara.

Fullt  starf á ársgrundvelli.
Mjög fjölbreytt og skemmtilegt starf í góðu umhverfi.

Starfslýsing í stuttu máli:
• Yfirþjálfun meistaraflokks kvenna, yfirþjálfari yngri flokka, þjálfun á einum yngri flokk, ásamt því að vera íþróttafulltrúi Knattspyrnudeildar.
• Þjálfarinn hefur yfirumsjón með faglegu starfi yngri flokka. 
• Þjálfarinn sýnir frumkvæði í að gera knattspyrnu í Keflavík betri.

Menntunar- og hæfnikröfur:
• Reynsla af þjálfun.
• Þjálfaramenntun sem nýtist í starfi.
• Þekking og ódrepandi áhugi á knattspyrnu.

Eiginleikar:
• Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.
• Sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til að vinna með öðrum
• Samstarfsvilji og jákvæðni.

Umsóknir ásamt ferilskrá sendist fyrir 1. október n.k. á netfangið kef-fc@keflavik.is.

Fyrirspurnum um starfið svara:
Þorsteinn Magnússon, formaður knattspyrnudeildar, s. 892 8058, steini@keflavik.is
Sveinn Þórarinsson, gjaldkeri kvennaráðs, s. 897 9540, si@alasund.is
Smári Helgason, formaður barna- og unglingaráðs, s. 691 2000, smari@afangar.is