Fréttir

Aron Grétar í Keflavík
Knattspyrna | 18. júlí 2014

Aron Grétar í Keflavík

Aron Grétar Jafetsson er genginn í raðir Keflavíkur og hefur gert samning til loka þessa tímabils.  Aron er fæddur árið 1994 og á að baki 15 leiki með U-19 ára og U-17 ára landsliðum Íslands.  Hann hefur æft með okkar liði undanfarið en var áður hjá Stjörnunni og lék nokkra leiki með liðinu í efstu deild.

Við bjóðum Aron Grétar velkominn í hópinn.