Fréttir

Ari Steinn framlengir
Knattspyrna | 10. febrúar 2016

Ari Steinn framlengir

Ari Steinn Guðmundsson hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Keflavík sem gildir út árið 2018.  Ari er 19 ára gamall miðjumaður og er uppalinn hjá félaginu.  Hann hefur þegar leikið tvo leiki fyrir Keflavík í efstu deild og tvo bikarleiki.  Ari Steinn lék sem lánsmaður hjá Njarðvík á síðasta tímabili og lék þá 10 leiki með liðinu í 2. deildinni.  Hann hefur leikið tvo leiki með U-19 ára landsliði Íslands.