Fréttir

Anita og Sveindís með U-19 ára
Knattspyrna | 24. ágúst 2016

Anita og Sveindís með U-19 ára

Anita Lind Daníelsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir verða báðar með U-19 ára landsliði kvenna sem leikur vináttulandsleik við Pólland á fimmtudag.  Leikurinn verður á Sandgerðisvelli kl. 18:00.  Leikurinn er liður í undirbúningi liðsins fyrir undankeppni EM sem fram fer í Finnlandi í september.

Anita og Sveindís hafa báðir áður leikið með U-17 ára landsliðinu.  Anita Lind er fædd árið 1999 og er 17 ára en Sveindís Jane er aðeins 15 ára gömul.  Þrátt fyrir ungan aldur eru þær fastamenn í meistaraflokki Keflavíkur sem hefur staðið sig með prýði í 1. deildinni í sumar.

Við óskum Anitu, Sveindísi og félögum þeirra góðs gengis í leiknum.


Anita Lind og Sveindís Jane.