Fréttir

Anita Lind og Sveindís Jane framlengja við Keflavik
Knattspyrna | 25. október 2018

Anita Lind og Sveindís Jane framlengja við Keflavik

Anita Lind og Sveindís Jane framlengja við Keflavík Anita Lind Daníelsdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir hafa skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Keflavíkur. Báðar léku þær lykilhlutverki í Keflavíkurliðinu í ár þegar liðið tryggði sér sæti í Pepsi deild 2019.

Anita Lind er 19 ára og spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki 2014. Hún hefur spilað alls 65 leiki með meistaraflokki Keflavíkur og skorað í þeim 24 mörk. Hún spilaði alla leikina í Inkasso deildinni í sumar og skoraði í þeim 7 mörk. Anita hefur spilað 27 leiki með U19 og U17 ára landsliðum Íslands og skorað 4 mörk.

Sveindís Jane er 17 ára og spilaði sinn fyrsta leik í meistaraflokki 2015. Hún hefur spilað alls 62 leiki með meistaraflokki Keflavíkur og skorað í þeim 47 mörk. Hún spilaði alla leikina í Inkasso deildinni í sumar og skoraði 9 mörk. Sveindís hefur spilað 27 landsleiki með U17 ára og U19 ára liðum í Íslands og skorað í þeim 15 mörk.

Leikmennirnir hafa báðir verið í lykilhlutverkum í Keflavíkurliðinu síðustu ár og því eru það frábærar fréttir fyrir klúbbinn að þær hafi ákveðið að framlengja sína samninga.