Fréttir

Allt á að seljast
Knattspyrna | 5. janúar 2017

Allt á að seljast

Flugeldasala Knattspyrnudeildar Keflavíkur verður með opið í K-húsinu við Hringbraut 108, föstudaginn 6. janúar frá kl.15:00 - 18:30.
Hægt verður að gera frábær kaup á stórum sem smáum flugeldapökkum, tertum og ýmsum gerðum flugelda.
Sala flugelda gekk með besta móti þessi áramótin þrátt fyrir að veður hafi sett strik í reikninginn framan af sölutíma.
Ágóðinn af flugeldasölunni fer í að styðja við barna- og unglingastarf ásamt meistaraflokk karla og kvenna.

Skjótum Keflavík á toppinn !
Knattspyrnudeild Keflavíkur.