Fréttir

Alexander í Keflavík
Knattspyrna | 15. nóvember 2014

Alexander í Keflavík

Alexander Magnússon hefur gengið til liðs við Keflavík og hefur skrifað undir tveggja ára samning.  Alexander er 25 ára gamall varnarmaður sem hóf feril sinn með Njarðvík.  Hann hefur leikið með Grindavík undanfarin ár en hefur barist við erfið meiðsli undanfarið.  Það er mikil ánægja hjá Knattspyrnudeildinni með að Alexander hafi slegist í hópinn og þar eru allir tilbúnir til að styðja hann til baka eftir meiðslin sem hafa hrjáð hann.

Við bjóðum Alexander hjartanlega velkominn í Keflavík.