Fréttir

Æfingaleikur gegn Njarðvík á fimmtudag
Knattspyrna | 23. apríl 2014

Æfingaleikur gegn Njarðvík á fimmtudag

Fimmtudaginn 24. apríl, sumardaginn fyrsta, leika Njarðvík og Keflavík æfingaleik.  Leikurinn verður á æfingasvæði Njarðvíkur og hefst kl. 18:00.  Það ætti að verða fjörugur leikur enda eru Njarðvíkingar nú undir stjórn Keflvíkinganna Guðmundar Steinarssonar og Ómars Jóhannssonar.   Þá er aðstoðarþjálfari Keflavíkur Gunnar Magnús Jónsson fyrrverandi þjálfari Njarðvíkur auk þess sem nokkrir af yngri leikmönnum liðanna hafa leikið með báðum liðum.