Fréttir

A-deildar sæti í höfn hjá 2. flokki
Knattspyrna | 11. september 2014

A-deildar sæti í höfn hjá 2. flokki

Lið Keflavíkur/Njarðvíkur hefur tryggt sér sæti í A-deild Íslandsmótsins næsta sumar.  Þetta varð ljóst eftir góðan 3-1 sigur gegn Þrótti í næstsíðustu umferð B-deildar.  Leikurinn fór fram á Nettó-vellinum í gær en þar náðu Þróttarar forystu í upphafi seinni hálfleiks.  Okkar strákar voru öflugir á lokakaflanum og tryggðu sér öruggan sigur en það voru Ari Steinn Guðmundsson, Patrekur Friðriksson og Fannar Orri Sævarsson sem gerðu mörkin að þessu sinni.

Þegar ein umferð er eftir í deildinni er Keflavík/Njarðvík í efsta sæti og hefur þegar tryggt sér sæti í A-deildinni að ári.  Síðasti leikur liðsins er gegn Fram sunnudaginn 14. september en Framarar eru í 2. sæti deildarinnar.