Fréttir

8. flokks æfingar í sumar
Knattspyrna | 21. maí 2015

8. flokks æfingar í sumar

Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki Keflavíkur hefjast miðvikudaginn 10. júní.

Skráning:  Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns. Staðfesting á skráningu verður send til baka.

Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2009, 2010 og 2011.

Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.

- Á námskeiði 1 verða æfingarnar kl. 15:30 – 16:30

- Á námskeiði 2 verða æfingarnar kl. 17:00 – 18:00

Æfingastaður:  Æfingasvæði Keflavíkur, aftan við Reykjaneshöll.
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar.

Mót: Farið verður á frábært Arion bankamót Víkings, helgina 15. – 16. ágúst (spilað annan hvorn daginn).

Æfingatímabil: Í sumar verður boðið upp á 2 námskeið.

  • Námskeið 1:
    10. júní – 1. júlí (12 æfingar)
  • Námskeið 2:
    6. júlí – 23. júlí (12 æfingar)
  • Tvær “aukaæfingar” verða 12. og 13. ágúst, rétt fyrir Arion bankamótið (samtals 14 æfingar).

Verð: 9000 kr. fyrir námskeiðið. Ef bæði námskeið eru sótt, er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 6000 kr. Systkinaafsláttur er veittur innan 8. flokks; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.

Þjálfarar:
Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur
Snorri Már Jónsson knattspyrnuþjálfari, ásamt aðstoð frá unglingum úr vinnuskólanum.

Allar nánari upplýsingar og skráning:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is