Fréttir

7 mörk hjá stelpunum gegn Hvíta Riddaranum
Knattspyrna | 8. febrúar 2016

7 mörk hjá stelpunum gegn Hvíta Riddaranum

Stelpurnar léku annan leik sinn í Faxaflóamótinu gegn Hvíta Riddaranum (systurfélag Aftureldingar) í Reykjaneshöll á föstudaginn. Yfirburðirnir voru miklir hjá heimastúlkum sem gerðu 5 mörk í fyrri hálfleik en voru heldur rólegri í seinni hálfleik þar sem þær settu 2 mörk, lokatölur 7 - 0. 

Mörk Keflavíkur: Birgitta Hallgrímsdóttir 4, Brynja Pálmadóttir, Sólveig Lind Magnúsdóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir.

Lið Keflavíkur: Auður Erla Guðmundsdóttir (m), Eva Lind Daníelsdóttir (Íris Una Þórðardóttir), Kristrún Ýr Holm, Þóra Kristín Klemensdóttir (Guðrún Lísa Ingþórsdóttir), Ólöf Stefánsdóttir (fl.), Ljiridona Osmani (Katla María Þórðardóttir), Brynja Pálmadóttir, Sólveig Lind Magnúsdóttir, Birgitta Hallgrímsdóttir (Marín Rún Guðmundsdóttir), Anita Lind Daníelsdóttir (Arndís Snjólaug Ingvarsdóttir), Sveindís Jane Jónsdóttir.

Tölfræðin í leiknum var ótrúleg eins og sjá má á meðfylgjandi mynd frá urslit.net




Lið Keflavíkur fyrir leikinn gegn Hvíta Riddaranum.
Myndina tók Jón Örvar Arason.