Fréttir

Undanúrslit bikarkeppni karla: Frí rútuferð í Þorlákshöfn
Körfubolti | 24. janúar 2016

Undanúrslit bikarkeppni karla: Frí rútuferð í Þorlákshöfn

Eftir rosalega rimmu gegn Njarðvík sl. föstudag heldur lífið áfram og nú er komið að enn einum stórleiknum, Þór - Keflavík í undanúrslitum bikarsins. Keflvíkingar ætla gefa allt í leikinn til að tryggja sér farmiða í sjálfan úrslitaleikinn í Laugardalshöllinni.

Stuðningsmenn Keflavíkur hafa verið duglegir að mæta á völlinn og styðja við liðið í vetur. Því ætlar KKDK að bjóða stuðningsmönnum liðsins í rútuferð til Þorlákshafnar, endurgjaldslaust. Skráning mun fara fram á Facebook síðu Keflavíkur. Takmarkað sætamagn verður í boði og því fer hver að verða síðastur að skrá sig. 

Áfram Keflavík!