Fréttir

U18 Keflavíkurstelpur
Körfubolti | 3. ágúst 2016

U18 Keflavíkurstelpur

Keflavíkurstelpurnar okkar í U18 landsliði Íslands hafa nýlega lokið keppni í B-deild Evrópumótsins í Sarajevo, en Thelma Dís Ágústsdóttir, Emelía Ósk Gunnarsdóttir, Katla Rún Garðarsdóttir og Þóranna Kika Hodge-Carr voru fulltrúar okkar á mótinu. Þær léku um bronsverðlaun og sæti í A-deildinni gegn Bosníu en þurftu að lúta í lægra haldi gegn þeirra sterku liði. Thelma Dís Ágústsdóttir var atkvæðamest hjá íslenska liðinu með 16 stig. Aldeilis flottur árangur hjá okkar stelpum og ljóst að framtíðin er björt kvennamegin í Keflavík.