Fréttir

Titus Rubles semur við Keflavík
Karfa: Karlar | 13. ágúst 2014

Titus Rubles semur við Keflavík

Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur gengið frá samningi við Bandaríkjamanninn Titus Rubles um að hann leiki með liðinu á komandi tímabili í Domino´s deild karla. Rubles, sem er framherji upp á 204 cm, kemur úr hinum sterka Cincinnati háskóla þar sem hann skoraði 7 stig og hirti 7 fráköst að meðaltali í leik á síðasta tímabili.

Það er von þeirra sem koma að Keflavíkurliðinu að Rubles verði happafengur fyrir klúbbinn og komi til með að leggja þung lóð á vogaskálirnar í vetur.

Mynd: Titus Rubles í leik með Cincinnati - www.newsrecord.org