Fréttir

Sumaræfingar í körfu - Æfingatafla
Karfa: Yngri flokkar | 10. júní 2016

Sumaræfingar í körfu - Æfingatafla

Sumaræfingar á vegum Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hófust í vikunni með afreksæfingum fyrir 8.-10.bekk. N.k. mánudag, 13. júní hefjast æfingar fyrir 3.-7. bekk.  

18-21. júlí og 24.-31. ágúst mun deildin síðan bjóða öllum í 1. og 2. bekk í körfuboltaskóla sem mun bara verða skemmtilegur.

Sumaræfingarnar eru frábær valkostur fyrir þá sem vilja taka framförum í sumar og kjörið tækifæri fyrir nýja iðkendur að prófa skemmtilegustu íþrótt í heimi.

Allar æfingar Körfuknattleiksdeildar Keflavíkur eru jafnt fyrir  drengi sem stúlkur. 

8.-10.bekkur:

  • Afreksæfingar mán-fimmtudaga frá kl. 9.00-11.15, allir velkomnir.
  • Frítt er á æfingarnar og þjálfari er Einar Einarsson.

3.-7.bekkur:

  • Æft verður í tveimur hópum, „3.-4. bekkur“ og „5.-7.bekkur
  • Æft verður í 6 vikur í 3x í viku, mánudag, þriðjudag og fimmtudag.
  • Æfingagjald fyrir tímabilið verður 5.000 kr.
  • Nokkrir þjálfarar koma að æfingunum og má sjá umsjónarmenn í æfingatöflu.

1.-2.bekkur:

  • Körfuboltaskóli sem verður nánar auglýstur síðar.
  • Frítt verður á æfingarnar og ýmsir þjálfarar koma við sögu.

ÆFINGATÖFLU SUMARÆFINGANNA MÁ SJÁ HÉR

Barna- og unglingaráð KKDK