Fréttir

Skráning hafin í æfingabúðir Jenny Boucek
Karfa: Hitt og Þetta | 2. desember 2014

Skráning hafin í æfingabúðir Jenny Boucek

Skráning er hafin í æfingabúðir Jenny Boucek á kvennarad@keflavik.is

Tilvalin jólagjöf fyrir körfuboltastúlkuna en hægt er að kaupa gjafabréf til að lauma í jólapakkann.

Jenny Boucek fyrrverandi leikmaður Keflavíkur í körfuknattleik, fyrrum WNBA leikmaður og núverandi aðstoðarþjálfari hjá Seattle Storm í  WNBA mun halda æfingabúðir fyrir stúlkur fæddar 2006  og eldri dagana 10. – 11. janúar 2015.  Æfingabúðirnar verða haldnar í Keflavík og mun Jenny verða yfirþjálfari  og stýra þeim með aðstoð reyndra þjálfara og leikmanna. Æfingabúðirnar eru ætlaðar stúlkum á öllu landinu og úr öllum félögum enda einstakt tækifæri að fá að æfa undir handleiðslu þessa frábæra og reynslumikla þjálfara.