Fréttir

Síðasti deildarleikur Keflavíkurkvenna
Körfubolti | 21. mars 2017

Síðasti deildarleikur Keflavíkurkvenna

Risa leikur mun fara fram í Dominosdeild kvenna þar sem Keflavíkurstúlkur sækja Snæfellinga heim í Hólminn. Leikið verður klukkan 19:15 og með sigri getur Keflavík jafnað Snæfell af stigum. Það mun hinsvegar ekki hafa neitt með stöðu liðanna í deildinni að gera þar sem Snæfellsstúlkur hafa nú þegar tryggt sér deildarmeistaratitilinn og Keflavíkurstúlkur því fastar í öðru sætinu. 

Við hvetjum auðvitað alla Keflvíkinga að mæta í Hólminn og styðja stelpurnar til sigurs en þær munu svo mæta Skallagrím í úrslitakeppninni. 

Áfram Keflavík!