Fréttir

Sara og Bríet semja til tveggja ára
Karfa: Konur | 15. apríl 2014

Sara og Bríet semja til tveggja ára

Tvíburasysturnar Bríet Sif Hinriksdóttir og Sara Rún Hinriksdóttir framlengdu í dag samning sinn við körfuknattleiksdeild Keflavíkur til tveggja ára. Stelpurnar sem unnið hafa nánast alla titla sem í boði hafa verið þau ár sem þær hafa leikið með Keflavík munu án efa koma til með að leika stórt hlutverk á komandi tímabili. Sara Rún hefur þegar stimplað sig inn sem einn allra besti leikmaður deildarinnar en hún skoraði 16 stig og tók 5 fráköst að meðaltali í leik í vetur. Bríet Sif tók miklum framförum milli ára og óx spilatíminn hennar talsvert en hún skoraði 5,5 stig að meðaltali.

Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur er ánægð með að þær systur skyldu framlengja og eru miklar væntingar gerðar til þeirra á næsta tímabili.

Áfram Keflavík