Fréttir

Ný stjórn hjá KKDK
Karfa: Hitt og Þetta | 1. júní 2015

Ný stjórn hjá KKDK

Aukaaðalfundur körfuknattleiksdeildar Keflavíkur var haldinn 28. maí sl. Dagskrá fundarins var stutt en helstu tíðindi fundarins voru þau að breyting varð á stjórn deildarinnar. Falur Harðarson mun áfram leiða stjórnina sem formaður og þá halda þeir Margeir Einar Margeirsson og Ásgeir Garðarson áfram. Nýjir í stjórn koma Jón Halldór Eðvaldsson og Ingvi Hákonarson auk þess sem Björn Víkingur Skúlason og Brynjar Guðlaugsson voru kosnir í varastjórn til viðbótar við Sigurð Markús Grétarsson sem setið hefur í varastjórn sl. tvö ár. 

Úr stjórn fara Sævar Sævarsson, Albert Óskarsson, Guðjón Skúlason og Anna Pála Magnúsdóttir. Er þeim þakkað þeirra starf í þágu félagsins.