Fréttir

Nágrannaslagur hjá Keflavíkurkonum
Körfubolti | 21. september 2015

Nágrannaslagur hjá Keflavíkurkonum

Í kvöld eiga Keflavíkurkonur sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum þegar þær mæta nágrönnunum úr Njarðvík. Bæði lið tefla fram ungum og efnilegum stúlkum en við hvetjum auðvitað alla til að kíkja á leikinn og hvetja stelpurnar okkar til dáða. Stelpurnar hafa æft duglega í sumar undir leiðsögn Margrétar Sturlaugsdóttur en hún tók við þjálfarastarfinu af Sigurði Ingimundarsyni í byrjun sumar. Margréti til halds og trausts er svo Marín Rós, sem þjálfar einnig stúlknaflokk Keflavíkur en meistaraflokkurinn samanstendur einmitt að miklu leiti af stúlknaflokks stelpum.

Frítt verður í TM-Höllina í kvöld og leikar hefjast kl. 19:15

Áfram Keflavík