Fréttir

Morgunæfingar á miðvikudögum og sunnudögum að hefjast
Karfa: Unglingaráð | 1. október 2014

Morgunæfingar á miðvikudögum og sunnudögum að hefjast

Áfram verður boðið upp á  morgunæfingar tvisar í viku fyrir alla iðkendur í 8. bekk og eldri og hefjast þær í næstu viku undir stjórn yfirþjálfara yngri flokka, Einars Einarssonar.

Allir áhugasamir iðkendur eru hvattir til að nýta sér gott tækifæri til að bæta sinn leik og það kostar einungis ósvikinn áhuga að fá að vera með.  MUNIÐ að aukaæfingin á stóran þátt í að skapa meistarann.

Sunnudagsæfingin verður í A eða B sal frá  kl. 11.00-12.00

Miðvikudagsæfingin verður í A sal kl. 06.40-7.30