Fréttir

Miðapantanir hafnar á Þorrablót Keflavíkur 2015
Karfa: Hitt og Þetta | 27. október 2014

Miðapantanir hafnar á Þorrablót Keflavíkur 2015

Miðapantanir eru hafnar á Þorrablót Keflavíkur 2015. Það þarf vart að taka það fram hve vel heppnuð þorrablót félagsins hefur verið undanfarin ár en búast má við því að það sama verði upp á teningnum þetta árið.

Upplýsingar um miðapantanir er að finna á myndinni hér fyrir neðan. Dagsskráin er farin að taka á sig mynd og mun enginn verða svikin að henni. Ákveðið hefur verið að halda tónlistaratriðum leyndum en þau verða ekki af verri endanum. Þá verður Keflavíkurannállinn á sínum stað, betri og beittari, og þá verður brekkusöngurinn, sem heppnaðist með ólíkindum í fyrra, endurtekinn og gerð tilraun til að toppa hann!

Tryggðu þér miða strax eða eins og maðurinn sagði; "Ekki vera sauður - þú veist það verður geggjað!"